PDA

View Full Version : Íslenski bakhlutinn eitthvað gallaður


arnijo@hi.is
March 31st, 2005, 11:48
Ég var að prufa að setja inn íslenska bakhlutann og allt virtist hafa gengið upp. Ég fer í 'Global Configuration' og í 'Locale' og sé að nú er hægt að velja tungumál fyrir bakhlutann. Ég vel 'icelandic' og ætla nú að vista breytingarnar en tek eftir því að það er enginn takki til að vista.

Svo virðist sem allir takkarnir: 'Save', 'Apply', 'Cancel' og 'Help' séu dottnir út eftir að hafa sett inn íslenskuna. Þetta er ekki bara í 'Global Configuration' heldur alls staðar.

Hér er eins og það á að vera: http://hi.is/~arnijo/m/ens.jpg

Hér er eins og það er eftir íslenskun: http://hi.is/~arnijo/m/isl.jpg


Er einhver með lausn á þessu vandamáli?

NP
March 31st, 2005, 13:19
Blessaður, hef prufað þýðinguna hjá mér og allt virkar fínt.

Hvaða útgáfu af mambo ertu með?

kveðja
Nanna

Logifago
March 31st, 2005, 13:48
Þú sendi vonandi allar skrárnar sem voru í pakkanum upp á vefþjóninn og skrifaðir yfir þær gömlu. Það verður að senda þær allar upp og ekki bara skrána admin_icelandic.php.

Ertu búinn að setja in patch fyrir 4.5.2.1 sem gæti hugsast hafa einhver áhrif.

Þessi mynd hér http://hi.is/~arnijo/m/isl.jpg getur ekki hafa komið frá íslenska mambo 4.5.2 pakkanum - borðin mambo administation kemur að sjá öðruvísi út með íslenska pakkann inni (mambo Kerfisstjórnun)

Ég er búinn að setja þetta upp á 6 vefsíður og hef ekki nein vandamál.

arnijo@hi.is
March 31st, 2005, 13:52
Blessaður, hef prufað þýðinguna hjá mér og allt virkar fínt.

Hvaða útgáfu af mambo ertu með?

kveðja
Nanna

Ég er núna búinn að prófa þetta bæði með 4.5.2 og 4.5.2.1

arnijo@hi.is
March 31st, 2005, 14:02
Þú sendi vonandi allar skrárnar sem voru í pakkanum upp á vefþjóninn og skrifaðir yfir þær gömlu. Það verður að senda þær allar upp og ekki bara skrána admin_icelandic.php.

Ertu búinn að setja in patch fyrir 4.5.2.1 sem gæti hugsast hafa einhver áhrif.

Þessi mynd hér http://hi.is/~arnijo/m/isl.jpg getur ekki hafa komið frá íslenska mambo 4.5.2 pakkanum - borðin mambo administation kemur að sjá öðruvísi út með íslenska pakkann inni (mambo Kerfisstjórnun)

Ég er búinn að setja þetta upp á 6 vefsíður og hef ekki nein vandamál.

Ég sendi allar skrárnar á vefþjóninn og er búinn að að setja patchinn fyrir 4.5.2.1.

Myndin isl.jpg er enn á enskunni því ég get ekki vistað breytingarnar þegar ég vel 'icelandic' í 'Locale' í 'Global Configuration' þar sem hnapparnir eru ekki til staðar.

Vandamálið er s.s. að eftir að ég er búinn að skipta út öllum skránum og logga mig síðan inn þá eru hnapparnir horfnir.

Logifago
March 31st, 2005, 14:10
Svona sér þetta út hjá mér

http://hem.bredband.net/mambodesign/mambo/mamboisl.jpg

Prófaðu að þennan pakka sem virkar hjá mér og síðan fáum við að sjá til hvort eitthvað hafi skeð með þetta.

http://hem.bredband.net/mambodesign/mambo/admin_icelandic452.zip

arnijo@hi.is
April 2nd, 2005, 04:53
Er búinn að laga þetta hjá mér. Það sem var að: þreytta, leti og ekki næg athygli.

Ég vissi að ekki væri hægt að skipta út öllum möppunum í heilu lagi heldur þyrfti að skipta út hverri skrá fyrir sig því það eru bara gerðar breytingar á hluta skjalanna. Ég vildi náttúrulega nota sem minnstan tíma í þetta og eftir að hafa séð hvað það voru margar component-möppur þá fór maður þreyttur og latur að finna upp á flýtileiðum. Ég rétt kíkti í eina af component-möppunum og gerði ráð fyrir að innihaldið í möppunum væri eins. Ég skipti því bara á öllum component-möppunum en ekki bara skjölunum. Þetta gerði það náttúrulega að verkum að þau skjöl sem fyrir voru í möppunum og ekki voru í íslenskunni hurfu.

Þetta er s.s. allt komið í lag núna og ekkert er að íslenska bakhlutanum. :)